Þessi er hugsuð fyrir byrjendur sem vilja prófa sig áfram í leikjum án þess að gera miklar kröfur um rammafjölda á sekúndu (FPS). AMD Ryzen örgjörvinn inniheldur skjákjarna sem gerir alla helstu leikina spilanlega í 30-60FPS (rammar á sekúndu) í 720p/1080p upplausn. Aðrir íhlutir vélarinnar gera ráð fyrir að auðvelt sé að bæta við öflugu leikjaskjákorti ef þörf er talin á slíku. Endorfy Ventum 200 ARGB leikjakassarnir koma með glerhlið og áberandi glæsilegum RGB ljósaviftum sem kæla íhluti, tryggja lengri endingu og gefa tölvunni skemmtilegt heildarútlit.