Þessi er hugsuð fyrir byrjendur sem vilja prófa sig áfram í vinsælustu leikjunum án þess að gera miklar kröfur um rammafjölda (FPS). AMD Ryzen örgjörvinn inniheldur skjákjarna sem gerir alla helstu leikina spilanlega í 30-60FPS (rammar á sekúndu) í 720p/1080p upplausn. Aðrir íhlutir vélarinnar gera ráð fyrir að auðvelt sé að bæta við öflugu leikjaskjákorti ef þörf er talin á slíku. Endorfy Ventum leikjakassarnir koma með glerhlið og flottum RGB ljósaviftum, sem kæla íhluti og tryggja lengri endingu og gefur tölvunni skemmtilegt heildarútlit.